MOROCCANOIL HIBISCUS COLOR DEPOSITING MASK 30ML

MOROCCANOIL HIBISCUS COLOR DEPOSITING MASK 30ML

Regular price
1.200 kr
Sale price
1.200 kr
Regular price
Sold out
Unit price
per 
Tax included.

Upplifðu tímabundinn hárlit með þeim kostum sem djúpnæringarmeðferð gefur. Þessi maski, sem er auðveldur í notkun og er fáanlegur í nokkrum litum, gerir þér kleift að prófa þig áfram með tískuliti, auka dýpt þeirra eða lengja líftíma litarins á milli heimsókna á stofuna. Hann inniheldur einnig nærandi efni, svo sem amínósýru, apríkósukjarnaolíu og hina endurbyggjandi ArganID tækni sem veitir hárinu heilbrigðari tilfinningu og útlit. Color Depositing Mask umbúðirnar eru unnar að hálfu leyti úr endurunnu efni og því er þetta kjörin leið til að minnka kolefnissporið með því að nota minni orku.

Hibiscus er sindrandi blómableikur litur til notkunar í ljósu og miðlungsljósu hári. Sökum mikillar dýptar, þá má vera að liturinn endirst lengur en aðrir litatónar. Útkoman er einstaklingsbundin og fer eftir ástandi hársins og lit þess. Taktu prófið til að finna þinn fullkomna litatón. Athugaðu að þessi vara er ekki ætluð fyrir gráa litatóna.

Kostir litarins

•Gefur hárinu aukinn litatón

•Endurlífgar lit hársins.

•Sérsniðinn hárlitur

•Tímabundin virkni

Kostir umhirðunnar

•Djúpnærir

•Eykur mýkt hársins samstundis.

•Eykur heilbrigði hársins.

•Veitir hárinu eftirtektarverðan gljáa.

Hvernig skal nota

1. Þvoið hárið og berið í rakt hár.

2. Skiptið hárinu upp og berið vel af maskanum í hárið. Dreifið vel, gott að nota grófa greiðu.

3. Biðtími er 5-7 mínútur en það fer allt eftir hversu djúpur liturinn á að vera. Má vera lengur.

4. Skolið vel með vatni og mótið svo eins og venjulega.

Ráð: Ef þú vilt ná fram pastel áferð, blandaðu þá ¼ hlut af Color Depositing Mask og ¾ hlutum af Moroccanoil® Weightless Hydrating Mask til að mýkja útkomuna.

Athugið: Color Depositing Maskarnir veita hárinu tímabundinn lit sem er hannaður til að renna smám saman úr. Þeim mun ljósara sem hárið er, þeim mun lengur mun liturinn duga. Litaútkoman og líf litarins er líka háð því hversu gljúpt hárið er. Leitaðu ráða hjá fagmanni á Moroccanoil hársnyrtistofu ef þú vilt flýta fyrir því að liturinn dofni.